Eitraðir prjónar
Dagsetning
20. mars 2010
Klukkan
30.04.2006 01:00:19 / olof

Evrópistill

Ég brann í skinninu þegar ég vakti hrafnana í morgun enda kominn laugardagur, dagur sem ákaft áhugafólk um söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva bíður spennt eftir. Ég mun vitaskuld ekki svíkja aðdáendur mína og held því áfram að rembast eins og rjúpan við staurinn við að leggja dóm á næstu átta lög. Fyrsta lag kvöldsins var frá Mónakó. Það hefur ekki farið mikið fyrir furstaríkinu í þessari keppni og greinilegt að þeir hafa tekið sér tíma í að útfæra sitt atriði en þeir skíta í sitt eigið hreiður og tefla fram litlu barni í gervi tálkvendis. Alger smekkleysa! Elena flytur lag Makedóníumanna sem var nú ekki alveg alslæmt. Viðlagið grípandi: Ninanjanajnaninanjananja. Lagið og myndbandið var þakið kynþokka og það er alltaf góður leikur. Varð vör við það í einni senunni að söngkonan klæddist blúndubrókum utan yfir nælonsokkabuxurnar en það eru einmitt svona frumlegheit sem koma manni á blað. Pólland Pólland Póland! Það eina sem mér dettur í hug er eftirrétturinn sem Rachel í Friends bjó til á þakkagjörðarhátíðinni þar sem hún blandaði óvart saman rjóma, sultu og kjöthakki, að mig minnir. Tríó Pólland inniheldur nefnilega rauðhærðan Rod Stewart, þýskan Emminenn og Babyspice. Helt brutal. Það er engum blöðum um það að fletta. Rússar bjóða fram sinni skærustu dægurlagastjörnu, Dima. Sætur töffari með sítt að aftan og hökutopp sem stynur lagið Never let you go. Honum veitir samt ekki af að hafa ballerínurnar í bakgrunn. Ég verð að játa að í kvöld náði hin Tyrkneska Sibel að gera við skemmdir sem Halim Al olli forðum. Hún náði fram diskópúkanum í mér með laginu Superstar og fyrir það lít ég fram hjá allri missmíði. Áður en lagið var á enda var ég farin að syngja með. Snyggt! Úkraína gerði mig alveg grallaralausa með Ruslönu og tókst það einnig í kvöld. Það er ýmist í ökla eða eyra. Þrátt fyrir skoðun mína hér er ég alveg viss um að þetta lag á eftir að sigla góðan byr í þessari keppni. Sjáið bara til! Finnar hafa alltaf verið svolítið útundan í þessari keppni og hafa nú ákveðið að endurtaka ekki mistökin í ár. Þeir hafa fengið hrós fyrir að koma með ferskan andblæ í keppnina. FERSKUR ANDBLÆR MINN RASS! Ég vil ekki sjá svona píp fíflalæti í þessari virðulegu keppni. Finnarnir mega bara setjast aftur í síðasta sætið enda er það sniðið að þeirra rassi (hafa hafnað þar í átta skipti á fjörutíu árum). Holland bjargaði mér alveg frá hjartsláttartruflunum sem bölvuðu Finnarnir komu af stað. Þeir tefla fram þremur ungum, sætum og glöðum dísum sem slá suðrænan takt með bongótrommum og syngja á tilbúnu tungumáli lagið Amambanda. Prettigen prettigen! Förfriskande tycker jag. Þetta voru semsagt framlögin sem kynnt voru í kvöld og þá er bara að bíða eftir næsta laugardegi þar sem framlag Svía verður kynnt og það er engin önnur en Carola sem syngur fyrir þeirra hönd en hún hefur tvisvar áður tekið þátt og hreppt 1. og 3. sætið. Ha det bra!

» 2 hafa sagt sína skoðun

29.04.2006 21:53:24 / anna

Maraþon - 1. æfing af 64

Jæja, fyrsta æfing skv. plani var tekin í dag - Seljahringurinn sem er 4,45 km. á 30 mínútum. Gekk allt voða vel þangað til hlaupin urðu á brattann. Ég hélt að ég þyrfti þar með að aflýsa maraþonáformum mínum strax á fyrstu æfingu en viti menn með því að hægja bara verulega á (og bíta fast á jaxlinn) þá náði ég að komast brekkurnar á enda og klára hringinn án þess að labba.

Bjarni styður mig dyggilega í þessu (eins og flestu öðru rugli sem ég tek mér fyrir hendur) og lullaði hringinn með mér. Samkvæmt plani á að hlaupa rúma 6 km. á næstu æfingu sem er á mánudag. Þá reynir enn frekar á þolið og þrjóskuna en vegalengdirnar sem hlaupnar eru aukast nokkuð hratt á næstu vikum. Það kemur því væntanlega fljótt í ljós hvort ég hef einhverja von um að þetta markmið náist. En sumsé, so far so good :D

hlaupakveðjur,

Anna


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.04.2006 21:02:57 / ebba

Öskubuskukomplexar

Árshátíð á morgun. Panik. Í hverju á ég að fara??? Ég á ekkert til að fara í……! Seinnipartinn á morgun á eiginmaðurinn von á móðursýkiskasti frá mér þegar ég þeyti fötum og skóm í allar áttir úr skápunum og urra á hann þegar fer að líða að því að nú þurfi bráðum að leggja af stað. Þetta er orðið svona munstur og við vitum bæði hvað er í vændum. Úff, aumingja hann! Svo þegar við loksins skröltum af stað, hann pirraður á því hvað ég er sein og ég eyðilögð yfir að vera ekki nógu falleg, fín og smart þá langar okkur mest að vera bara heima og sofna helst yfir sjónvarpinu. Kannist þið við þetta eða er ég bara svona skrítin? Hvað er það eiginlega sem fær ofurhversdagslega konu eins og mig til að halda að allt í einu þegar brestur á árshátíð eða eitthvað álíka þá…….. hókus, pókus, hviss, bamm, búmm… þurfi hún að breytast í fallegustu stúlkuna á ballinu? Ótrúlegur andskoti.

24 tímar í árshátíð. Það er orðið of seint fyrir gelneglur og brúnkumeðferð, ég á engan síðkjól og kjólarnir hennar Þórunnar eru bara ekki eins flottir á mér og henni. Held samt að það eina sem prinsinn minn fari fram á annað kvöld sé að Öskubuska haldi sönsum og við missum ekki af fordrykknum.

Wish me luck!


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.04.2006 19:48:27 / ebba

Hinn minn

Ákvað að nota tækifærið,um leið og ég æfi mig í að setja inn myndir hér á pækilinn, og deila með ykkur hinum manninum í lífi mínu. Sá heitir Eric Bana, bifvélavirki og leikari auk þess að vera ástríkur eiginmaður og faðir tveggja drengja.  Þekki því miður ekki mikið til piltsins, nema hvað ég kolféll fyrir honum í stórmyndinni Troy. Mæli með henni fyrir þær sem þurfa á upplyftingu að halda um helgina (fáklæddir og fallegir menn með sverð, getur ekki klikkað!) Alltaf gott að vera með varaskeifu ef eiginmaðurinn er með einhverja stæla.

Hafið það gott um helgina elskurnar mínar,

E. Bana


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.04.2006 12:39:58 / ebba

Dísa skvísa í Salnum

Mæli með því að fólk geri sér ferð í Salinn í Kópavogi á laugardaginn kl. 16:00. Þar mun þessi flotta söngkona halda útskriftartónleika sína frá LHÍ. Lofa ykkur frábærum tónleikum með æðislegri söngkonu. Tónleikarnir eru ókeypis og allir velkomnir. Sjáumst í Salnum.


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.04.2006 18:20:32 / anna

Fjölgun í K4...

...þetta kom nú heldur óvænt, sér í lagi þar sem við þóttumst vera búin að sjá það út að báðar kanínurnar væru karlkyns - en svo er greinilega ekki.

Skella kanína hefur sumsé hafið hreiðurgerð og nú bíðum við spennt eftir því sem í vændum er. Mér skilst að ungarnir geti orðið allt að 10 en við erum ekki alveg viss um hvenær von er á þeim. Ég hef ekki hugmynd um hvers konar aðbúnað þeir þurfa en vona nú að við þurfum ekki að flytja fjölskylduna inn. Einhverjar spurnir höfðu Álfur og Baldvin af því að karlarnir ætu afkvæmi sín stundum og því eru uppi hugmyndir um að loka Snúlla sem er pabbinn, mun yngri en Skella (þetta er svona Demi Moore og Aston Kutcher dæmi), af á meðan ungarnir komast á legg.

Kanínubúskapurinn heldur okkur sumsé við efnið og er garðurinn fyrir enda hússins orðinn fremur lítið spennandi út frá fagurfræðilegu sjónarmiði. Vírgirðingin utan um yfirráðasvæði kanínanna er margbætt og beygluð eftir ítrekaðar strokutilraunir þeirra. Nú upp á síðkastið (getur verið að það tengist óléttunni) hefur Skella tekið til við að grafa holur í gríð og erg og jafnast það á við bestu teiknimynd að fylgjast með framkvæmdunum. Það má því líta á stóra stofugluggan sem risa plasmaskjá þar sem boðið er upp á beina útsendingu af Bugs Bunny. Síðan er handhægt að príla upp á stól og opna gluggann til að henda út grænmetis, ávaxta og blómaafgöngum.

Sumsé líf og fjör í K4 og ef ykkur vantar gæludýr þá er aldrei að vita nema við getum séð af 1-2 kanínuungum eftir nokkrar vikur.

» 2 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 22:59:25 / thorunn

Fyrirhyggjusemi

Jæja, þá er það opinberlega staðfest að minnsta fyrirhyggjusemi í fjármálum af meðlimum Eitraðra prjóna sýna Ebba, Dagný, Þórunn og Ólöf.  Getur þetta staðist???

Fékk yfirlit frá Möggu sent í tölvupósti þar sem ég las þessi ógurlegu tíðindi milli línanna.  Er nefnilega sjálf búin að safna 0 kr. fyrir utanlandsferðinni okkar í haust.  Ekki það að ég hafi ekki margoft ætlað að leggja nú inn en..........  Góðar fréttir, opnaði heimabankann minn áðan og ætlaði að afgreiða þetta í eitt skipti fyrir öll; skipa honum að leggja 1x í mánuði ákveðna upphæð inn, þannig ætti ég að eiga sæmilegan sjóð í haust. En............ bankinn neitaði að hlýða mér, fann engar skipanir af þessu tagi til að velja þannig að ég á ennþá 0 kr. í sjóðnum.  Kannski við Helgi Rafn löbbum í bæinn á morgun og fáum aðstoð bankastarfsmanna við þetta allt saman. Spurning að setja upp skoðanakönnun og sjá hve margar ykkar virkilega trúið að ég láti nú loksins verða af þessu he he he.............

Ég hér með skora á sjálfa mig, Ebbu, Dagnýju og Ólöfu að bretta nú upp ermar því þó ísferð austur fyrir fjall sé alls ekkert óeftirsóknarverð í sjálfu sér þá langar mig nú með út í heim.


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 15:58:39 / olof

Óla

Eins og sagt er: Góð vísa er aldrei of oft kveðin!

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 15:55:52 / olof

Minniháttar vandræði

Hvað lífið væri miklu þægilegra ef ég hefði bara aðeins meira minni. Þessa dagana geri ég fátt annað en að lesa námsbækurnar, enda nálgast prófin. Allt annað sem þarf að huga að í lífinu hreinlega bara gleymist. Átti t.d. að hitta vinkonurnar á kaffihúsi í vikunni, en ég gleymdi mér yfir lestrinum (vona að þær fyrirgefi mér). Hvað situr svo eftir af lestrinum? Ekki neitt. Ég held samt mínu striki. Vakna snemma og fer á bókasafnið, les þar til sautjánhundruð, leita að bílnum því að ég get ekki fyrir mitt litla munað hvar ég legg á meðan ég fer inn og næri heilann á mikilvægum upplýsingum til þess að hann hafii einhverju að gleyma. Mæti síðan í vinnuna sem gengur nú yfirleitt áfallalaust fyrir sig, enda krefst hún meira líkamlegra krafta heldur en andlegra. Svo kem ég heim og þá er ég iðulega minnt á eitthvað sem ég átti að gera, en...........ég bara gleymdi. Ég vona svo sannarlega að það sé einhver þarna úti sem situr við að hanna minniskubba fyrir mannsheilann svo að ég geti farið að fara í BT og keypt aukaminni og smellt í minn litla heila. Hafið þið heyrt af einhverju slíku?

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 15:49:44 / olof

Minniháttar vandræði

Hvað lífið væri miklu þægilegra ef ég hefði bara aðeins meira minni. Þessa dagana geri ég fátt annað en að lesa námsbækurnar, enda nálgast prófin. Allt annað sem þarf að huga að í lífinu hreinlega bara gleymist. Átti t.d. að hitta vinkonurnar á kaffihúsi í vikunni, en ég gleymdi mér yfir lestrinum (vona að þær fyrirgefi mér). Hvað situr svo eftir af lestrinum? Ekki neitt. Ég held samt mínu striki. Vakna snemma og fer á bókasafnið, les þar til sautjánhundruð, leita að bílnum því að ég get ekki fyrir mitt litla munað hvar ég legg á meðan ég fer inn og næri heilann á mikilvægum upplýsingum til þess að hann hafii einhverju að gleyma. Mæti síðan í vinnuna sem gengur nú yfirleitt áfallalaust fyrir sig, enda krefst hún meira líkamlegra krafta heldur en andlegra. Svo kem ég heim og þá er ég iðulega minnt á eitthvað sem ég átti að gera, en...........ég bara gleymdi. Ég vona svo sannarlega að það sé einhver þarna úti sem situr við að hanna minniskubba fyrir mannsheilann svo að ég geti farið að fara í BT og keypt aukaminni og smellt í minn litla heila. Hafið þið heyrt af einhverju slíku?

» 3 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 14:30:47 / helga

Nútímakonur (helga)

Jæja kæru vinkonur. Þið eruð aldeilis duglegar og atorkumiklar konur. Ég er bara dösuð í dag. Keyrði á Blönduós og Siglufjörð í gær (800 km fram og til baka), er búin að halda tvær lyfjakynningar í dag og á eftir að halda kvöldfund klukkan 18:00. Er búin að nýðast á mínum nánustu næstum upp á hvern dag með að passa, sækja eða eitthvað stúss. Svei mér þá, ég veit ekki hvort að það sé alltaf þess virði að vera að standa sig vel á öllum vígstöðum. Stundum langar mig bara að stimpla mig út og fara heim að sofa. En það koma betri dagar en þessi. Mér finnst yfirleitt bara gaman í vinnunni en keyri mig stundum of langt. Er að fara að hjóla frá Vín til Búddapest 16.-23. júní og hef ekkert komist til að æfa mig. Fer þetta þá bara á þrjóskunni.

Love you all!!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.04.2006 20:35:04 / anna

Maraþon

Jæja, þá er það ákveðið, ég stefni á að hlaupa heilt maraþon í Reykjavíkurmaraþoninu í ágúst - er búin að kaupa bókina og allt...

Upphaflega planið var jú að hlaupa með Lance Armstrong í New York í nóvember en nú er krónan fallin og ég hvort eð er örugglega allt of sein að skrá mig. Það verður því ekki leitað langt yfir skammt hvað staðsetningu varðar.

En sumsé, eins og mig grunaði var til í Ameríku svona "Marathon for dummys" bók. Heitir reyndar The Non-Runner's Marathon Trainer og er gefin út í framhaldi af námskeiði sem boðið var upp á fyrir stúdenta í the University of Northern Iowa. Í bókinni (og á námskeiðinu) er því lofað að fylgi maður leiðbeiningunum þá dugi 16 vikur til að koma sér í maraþonhæft form. Það er þó sérstaklega tekið fram að markmiðið skuli einungis vera að ljúka maraþoninu (áður en búið er að taka niður markið og tímatökufólkið er farið heim). Engin markmið skulu sett um að ljúka maraþoninu á góðum tíma.

Ég hef svosem ágætis reynslu af svona áætlunum sbr. 6 vikna áætlunina sem tekin var fyrir 10 kílómetrana í fyrra, þó hér sé kannski um heldur meiri firringu að ræða. En svona er ég nú bara - þarf minn skammt af rugli - betra að hann sé í þessu formi en mörgu öðru.:|

Í dag eru 16,57 vikur í Reykjavíkurmaraþonið svo ég mun hefja æfingar eftir 0,57 vikur eða 4 daga.

anna (on a mission - again)

» 6 hafa sagt sína skoðun

25.04.2006 12:48:22 / halla

Nám

Ég er svon sannarlega hlynnt námi.  Því meira nám því betra og það virðist vera trendið í þjóðfélaginu.  Fólk á öllum aldri flykkist í nám og framhaldsnám og margir skila ekkert í því af hverju þeir byrjuðu ekki á því að efla lífsins anda miklu fyrr.  Ég þekki samt eina konu sem er langt komin á sjötugsaldurinn og hún skilur ekkert í þessu "námsæði ungra kvenna".  Svo vill til að tengdadóttir hennar er í þessum hóp og hún býsnast oft og mikið yfir þessum ungu konum sem eiga mann og tvö til þrjú börn, eru svo í fullri vinnu og erfiðu námi, stunda líka líkamsrækt og eru í einum eða tveimur saumaklúbbum.  "Þær eiga bara eftir að fá taugaáfall yfir öllum kröfunum sem þær gera til sín þessar ungu konur" segir hún hátt og snjallt.   En.... um daginn fór ég að spyrja hana út í hennar ungukonutíma.  Þá kom það upp úr kafinu að þegar hún var á okkar aldri þá er hún búin að eignast þrjá syni, maðurinn í mikilli vinnu og á þessum árum tóku þeir ENGAN þátt í heimilisstörfum.  Hún var samt í fullri vinnu ásamt þvi að kenna í kvöldskóla og saumaði og prjónaði allan fatnað á drengina þrjá.........  og munið að þá voru engar uppþvottavélar og bara örfáir áttu þurrkara og tilbúnir réttir voru ekki til í búðunum.  Það þurfti að taka slátur á hverju hausti og baka jólakökurnar og hjónabandssælurnar, sulta rabbabarann og aðalbláberin og... og... og...   Höfum við það ekki bara ágætt stelpur.


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.04.2006 00:43:45 / dagny

Veraldlegur eða andlegur auður

Það er verst að vera svona langt í burtu og missa af því að fá allar þessar fínu gjafir Glitnis. Bankar eru ekki beint í uppáhaldi hjá okkur hérna megin Atlantshafsins þessa dagana, ekki vegna einhvers sem þeir hafa gert okkur heldur vegna þeirra tíðinda sem við lesum reglulega á heimasíðum þeirra. Hingað til hefur áhugi á efnahagsmálum verið afskaplega takmarkaður á þessum bæ en síðustu mánuði og sérstaklega vikur hafa heimasíður með gengi íslensku krónunnar verið hvað mest heimsóttu síðurnar. Við höfum horft með hrylling á hvernig krónan veikist og veikist þannig að allri okkar tilveru hér, sem byggist á því að fá sem flesta dollara fyrir hverja krónu, er stefnt í voða. Það var búið að gera langa lista yfir það sem átti að kaupa og taka með heim því það átti jú að græða svo mikið, föt og leikföng fyrir barnið fram á unglingsár, bækur, tölvuforrit til þess að vera nú með allt löglegt og fínt á þeim vettvangi, hjól, skíði og annað útivistardót, húsgögn og meira að segja gælt við þá hugmynd að fjárfesta í bíl. Nú eru öll þessu fögru áform úr sögunni og lítið annað að gera en koma sér heim með það sama í farteskinu og þegar lagt var í víking fyrir tæpum tveimur árum.  

Við erum sem sagt búin að komast endanlega að því að við erum ekki svona fólk sem græðir án þess að hafa fyrir því, vinnum ekki í happdrætti, eigum ekki gamlan ríkan frænda sem arfleiðir okkur eða högnumst á gengisbraski. En veraldleg gæði eru ekki allt eins og Ebba benti svo réttilega á fyrir nokkrum dögum og þó gengið komi kannski í veg fyrir að við komum heim ríkari af alls konar drasli þá komum við örugglega heim með góðan sjóð af reynslu og minningum.


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.04.2006 22:01:26 / ebba

Way to go Glitnir

Ég er ánægð með ,,nýja” bankann okkar Glitni. Á þeim stutta tíma sem hann hefur starfað hefur hann sent mér frábæran geisladisk, boðið mér á stórkostlega rokkhátíð á Ísafirði og nú síðast fékk ég senda bókaávísun að gjöf frá þessum ágæta banka. Allt þetta án þess að ég sé einu sinni í viðskiptum við bankann. Á sama tíma hefur viðskiptabankinn minn (sem ég kýs að nefna ekki hér) ekki sent mér neitt gleðilegra en endalaus reikningsyfirlit, misánægjuleg.

Geisladiskurinn hefur verið í stöðugri spilun á heimilinu. Hefði ekki gert betri brennslu sjálf. Á rokkhátíðinni komu samar ungir og aldnir, fjáðir og snauðir og áttu þess kost að hlýða á fjölbreytta dagskrá með frábæru listafólki. Í boði Glitnis.

Ég keypti mér Draumalandið – sjálfshjálparbók handa hræddri þjóð fyrir Glitnisávísunina. Ótrúlegur kokkteill á náttborðinu mínu núna. Auk Draumalandsins er þar að finna bækurnar: Móti hækkandi sól – Lærðu að virkja kraft vonar og heppni í lífi þínu og Gæfuspor – Gildin í lífinu. Maður skyldi ætla að eftir þessa lesningu alla verði ég orðinn sérfræðingur í listinni að lifa góðu og innihaldsríku lífi. Læt ykkur vita hér á plokkinu þegar ég finn lykilinn að lífshamingjunni.

Ég vil biðja fulltrúa okkar hjá Glitni að skila bestu þökkum til Bjarna Ármanns og co.. Keep up the good work. Ef minn gamli banki tekur sig ekki á og fer að tríta mig eitthvað er aldrei að vita nema ég flytji mig yfir.


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
RSS tengill
N.Y Marathon
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 503 dögum
N.Y Marathon
Vesturgata
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 609 dögum
Vesturgata